|
Ökunámið
Að öðlast ökuréttindi er mikil og ávalt eftirminnanleg stund í
lífi hvers og eins. Heimilt er að hefja ökunám þegar neminn hefur
náð 16 ára aldri. Í framhaldinu þarf ökuneminn að gangast undir nám
hjá löggiltum ökukennara og standast bæði verklegt og skriflegt próf
til að öðlast ökuréttindin. Lögum samkvæmt getur ökuneminn í fyrsta
lagi fengið ökuréttindin á 17 ára afmælisdeginum hafi hann staðist
allar þar kröfur sem til hans eru gerðar í náminu.
Ökunámið
I Hvernig byrja ég í ökunámi ?
Ákvörðun um að hefja ökunám þarf að vera sameignleg ákvörðun
foreldra og ökunemans, því enginn má hefja ökunám nema með samþyggi
foreldra/forráðamanna. Í framhaldinu getur þú sett þig í samband við
mig og við komum okkur saman um tíma til að hittast. Framhaldið
ræðst síðan að högum hvers og eins.
II Fjöldi ökutíma hjá hverjum og einum
Mjög erfitt er að segja fyrir um hvað hver og einn ökunemi þarf að
taka marga tíma til að öðlast ökuréttindi. Fólk er mislengi að ná
tökum á akstrinum og auk þess gengur bóklegi hlutinn misvel.
Æfingaaksturinn er góð viðbót við ökunámið ef rétt er að honum
staðið. Æskilegt er að æfa sig reglulega, 1-3 í viku og velja þá
mismunandi leiðir. Algengt er að ökunemar taka á bilinu
17-22 ökutíma í heildina áður en farið er í próf.
III Framkvæmd prófa
Hægt er að taka bóklega prófið tveimur mánuðum fyrir 17 ára
afmælisdaginn. En akstursprófið má hinsvegar einungis taka viku
fyrir afmælisdaginn. Til þess að viðkmandi ökumaður sé löglegur til
prófs þarf hann að vera búinn að skila inn umsókn um ökuskírteini
til sýslumanns (Sýslumanninn í Kef. Vatnsnesvegi 33)
ásamt góðri ljósmynd sem er 35x45 mm að stærð. Í dag kostar
skírteinið 2200 kr. Prófin fara fram á miðvikudögum i Skátahúsinu og
kostar bóklega prófið kr. 2100 og verklega prófið 5800 kr.
frumherji.is
IV Hvað er æfingaakstur?
Þeir sem vilja mega hefja ökunámið þegar þeir hafa náð 16 ára aldri
og fá í kjölfarið æfingaakstur með sínum foreldrum eða ættingjum.
Fyrst þarf viðkomandi að fara í tíma til ökukennara og þegar hann
hefur metið nemandann hæfan til að geta ekið einn og hjálparlaust
gefur hann út vottorð sem síðan er fyllt út af verðandi
leiðbeinanda. Umsóknina þarf að fara með til tryggingafélags bílsins
og síðan til sýslumanns og þegar því er lokið fær nemandinn skilti
með áletruninni ÆFINGAAKSTUR sem haft er aftan á bílnum þegar neminn
er að aka. Æfingaakstur er viðbót við ökukennsluna en kemur ekki í
stað kennslu ökukennarans.
Nánari upplýsingar um æfingaakstur.
V Ökuskólinn
Allir nemar eru skyldaðir til að fara í ökuskóla sem er 24
kennslustundir. Ökuskólanum er skíðan skipt upp í Ö1 og Ö2. Hvor
hluti er kenndur á þremur kvöldum. Ljúka þarf Ö1 áður en viðkomandi
fær æfingarleyfi og síðan þarf að ljúka Ö2 áður en farið er í
prófið. Ökukennarinn gefur nemanum upp hvar og hvenær ökuskólinn er
kenndur. Í ökuskólanum er farið yfir öll þau atriði sem nauðsynlegt
er að kunna áður en farið er í bóklega þátt ökuprófsins, auk þess
sem nemendur fá að spreyta sig á æfingaprófum sem kemur sér vel.
Þegar viðkomandi nemandi hefur lokið Ö2 fær hann í hendurnar „Umsókn
um ökuskírteini" sem hann fer með til sýslumanns (Sýslumanninn í Kef.
Vatnsnesvegi 33) Þar sækir hann um leyfi til að mega
gangast undir hið raunverulega ökupróf. Allt þetta er útskýrt í
skólanum.
Nánari upplýsingar um ökunámið.
Ef einhverju er enn ósvarað er þér velkomið að hafa samband án
allrar skuldbindingar
gud@gud.is
|