 |
B-réttindi
Í almennum ökuréttindum (B-réttindum) felst eftirfarandi heimild:
Almenna bílprófið veitir réttindi til að stjórna:
- fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með
sæti fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns,
- sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna,
- fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er
750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd,
- fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er
meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé leyfð heildarþyngd
beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd
eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd
dráttartækisins,
- dráttarvél,
- vinnuvél,
- léttu bifhjóli (skellinöðru),
- torfærutæki, s.s. vélsleða.
|