Ökuskólinn

Home Ökunámið Ökukennarinn Tenglar Námsefnið Myndbrot B-réttindi Bíllinn Ökuskólinn Allt um ökuprófið


Ökuskólinn

Ökuskólinn er hluti ökunámsins og er þar um að ræða 24 kennslustunda nám sem skiptist í tvo megin hluta sem eru kallaðir Ö1, fyrri hluti og Ö2 seinni hluti. Hvor hluti skiptist í 12 kennslustunda námskeið sem er kennt á þremur kvöldum. Ö1 er tekinn áður en æfingarakstur hefst ( sé um hann að ræða ) en Ö2 er tekin áður en farið er í skriflega prófið.
Ökuskóli Suðurnesja er starfræktur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og kennt er mánudag, þriðjudag og miðvikudaga aðra hvora viku. Ö1 er kenndur fyrstu vikuna í hverjum mánuði og Ö2 er kenndur í þriðju viku hvers mánaðar. Ökukennari, í samráði við ökunemann, sér um að skrá hann í ökuskólann.

Í Ö1 er farið í eftirfarandi þætti:
-Ökuskírteinið og ökuréttindi
-Bifreiðin
-Umferðarheildin
-Umferðarlög
-Umferðarmerki
-Umferðarhegðun
-Almenn viðhorf í umferðinni
 Ö2 er farið í eftirfarandi þætti:
-Upprifjun á námsþáttum í Ö1
-Umferðarsálfræði
-Áættuþættir umferðar
-Viðhorf og ábyrgð ökumanns
-Opinber viðurlög við brotum
-Skyndihjálp
-Undirbúningum undir fræðilega prófið


.........................................
Guðni Erlendsson
löggiltur ökukennari