Allt um ökuprófið
Fræðilega prófið er hægt að taka tveimur mánuðum áður en
ökuneminn verður 17 ára. Verklega prófið má taka einni viku fyrir 17
ára afmælisdaginn. Ökuprófin eru í umsjón Frumherja hf. Í
Reykjanesbæ er prófað á miðvikudögum og fara prófin fram í
skátaheimilinu við Hringbraut.
Áður en hægt er að fara í fræðilega prófið þarf að klára allan
ökuskólann. Í ökuskólanum fær ökuneminn umsóknareyðublað um
ökuskírteini sem hann leggur inn hjá Sýslumanninum í Keflavík sem er staðsettur
á Vatnsnesvegi 33 í Reykjanesbæ. Það tekur umsóknina 2-3 daga að
berast til Frumherja svo nauðsynlegt er að ökunemar skili inn
umsókninni á föstudegi skulu þeir í próf næsta miðvikudag á eftir.
Greiða þarf fyrir ökuprófin á prófstað. Skriflegt próf kostar kr.
2100,- og verklegt próf kr. 5.800,- ef viðkomandi stenst ekki prófið
þarf að líða vika þar til heimilt er að taka prófið á ný. Þetta á
bæði við skriflegt og verklegt próf. Ef endurtaka þarf ökupróf, þarf
að greiða nýtt prófgjald.
Ökunemar þurfa að hafa meðferðis ökunámsbókina, bæði þegar tekið
er bóklegt og verklegt próf. Prófdómara ber að fara yfir hana, kanna
hvort ökukennari og ökuskóli séu búnir að staðfesta nám nemans.
Nánar um ökupróf
http://www.us.is/id/925
|